Endanleg dagskrá og tillögur fyrir aðalfund Arion banka hf
Börskollen - Aktier, fonder och ekonominyheter

Börskollen

För dig med koll på börsen

Pressmeddelande

Endanleg dagskrá og tillögur fyrir aðalfund Arion banka hf. þann 16. mars 2021

Meðfylgjandi er endanleg dagskrá og tillögur fyrir aðalfund Arion banka hf., sem haldinn verður með rafrænum hætti þriðjudaginn 16. mars kl. 16:00. Fundurinn fer fram á íslensku, en boðið verður upp á túlkaþjónustu á ensku.

Mikilvægir tímafrestir fyrir hluthafa:

  • Tillögur eða málefni sem taka skal til meðferðar á fundinum
    Tilkynning um að hluthafi óski eftir að fá tiltekið mál tekið til meðferðar á fundinum skal send eigi síðar en kl. 16:00 þann 6. mars 2021, sbr. ákvæði gr. 10.10. í samþykktum bankans.
     
  • Skráning á fundinn
    Hluthafar sem hyggjast sækja aðalfundinn, eða eftir atvikum greiða atkvæði fyrir fundinn, þurfa að óska eftir aðgangsupplýsingum á www.smartagm.com eigi síðar en kl. 16:00 þann 11. mars 2021.
     
  • Framboð til stjórnar og tilnefningarnefndar verða birt eigi síðar en tveimur dögum fyrir fundinn, þ.e. 14. mars 2021.
     
  • Forkosning opnar 24 tímum fyrir fundinn
    Opnað verður fyrir forkosningu kl. 16:00 þann 15. mars. Lokað verður fyrir forkosningu tveimur tímum fyrir fundinn. Jafnframt verður opið fyrir kosningu meðan á fundinum stendur.
     

Mikilvægir tímafrestir fyrir eigendur SDR hlutdeildarskírteina:

  • Tillögur eða málefni sem taka skal til meðferðar á fundinum
    Tilkynning um að hluthafi óski eftir að fá tiltekið mál tekið til meðferðar á fundinum skal send eigi síðar en kl. 16:00 þann 6. mars 2021, sbr. ákvæði gr. 10.10. í samþykktum bankans.
     
  • Skráning á fundinn
    Til að taka af allan vafa er athygli vakin á því að þeir SDR heimildarskírteinishafar sem hyggjast fá aðgangsupplýsingar til að taka þátt og kjósa rafrænt á fundinum sækja ekki um aðgang í gegnum vefsíðuna www.smartagm.com, heldur með tilkynningu til Skandinaviska Enskilda Banken AB („SEB“) um þátttöku á fundinum með rafrænum hætti.
    SDR heimildarskírteinishafar, sem hyggjast sækja fundinn með rafrænum hætti eða greiða atkvæði á fundinum samkvæmt umboði, skulu vera skráðir í skrá Euroclear Sweden AB fyrir kl 17:00 (CET) þann 11. mars 2021 og gera annað af eftirtöldu:
    • Tilkynna SEB um þátttöku á fundinum með rafrænum hætti í síðasta lagi 11. mars 2021, eða
    • senda frumrit umboðs til SEB, en það þarf að hafa borist SEB eigi síðar en 11 mars 2021.
    • Nánari upplýsingar og leiðbeiningar fyrir SDR heimildarskírteinishafa eru aðgengilegar á vefsíðu bankans, www.arionbanki.is/gm.
       
  • Framboð til stjórnar og tilnefningarnefndar verða birt eigi síðar en tveimur dögum fyrir fundinn, þ.e. 14. mars 2021
      
  • Forkosning opnar 24 tímum fyrir fundinn
    Opnað verður fyrir forkosningu kl. 16:00 þann 15. mars. Lokað verður fyrir forkosningu tveimur tímum fyrir fundinn. Jafnframt verður opið fyrir kosningu meðan á fundinum stendur.
     

Tímabundin takmörkun á yfirfærslu SDR heimildarskírteina í hluti og öfugt

  • Frá og með lokun markaða 11. mars 2021 til og með 18. mars 2021 verður óheimilt að yfirfæra SDR heimildarskírteini í hluti í Arion banka hf. og öfugt.
     

Allar nánari upplýsingar og leiðbeiningar eru aðgengilegar á vefsíðu bankans, www.arionbanki.is/gm.

Bifogade filer

Börskollens app – Högt betyg ⭐⭐⭐⭐⭐ och 250.000 nedladdningar

Ladda hem

Vårt nyhetsbrev – Utvalda börsnyheter och heta investeringscase varje vecka

Prenumerera

Nyheter om Arion Banki

Läses av andra just nu

Innehåller annonslänkar

Så kommer du igång med trading

Den här månaden har vi valt att lyfta fram trading som utbildningstema, så att du som läsare ska få en möjlighet att fördjupa dig mer och spetsa dina kunskaper. Nedan finner du ett antal matiga guider och vi lyfter även fram vårt förstahandsval av mäklare och plattform: IG.

STÄNG X
Bästa valet för trading – Bra erbjudande & gratis utbildning
Världsledande global tradingmäklare med prisbelönt app
Gratis att öppna konto & demokonto (fiktiv handel)
KOM IGÅNG

74% av alla icke-professionella kunder förlorar pengar på CFD-handel hos de här leverantörerna.

Om aktien Arion Banki

Senaste nytt