Lækkun hlutafjár Arion banka
Aðalfundur Arion banka hf. sem fram fór þann 16. mars 2021 samþykkti að lækka hlutafé félagsins um 70.000.000 kr. að nafnvirði, sem nemur 70.000.000 hlutum, til jöfnunar á eigin hlutum félagsins. Lækkunin hefur nú verið framkvæmd og tekur gildi 20. apríl 2021. Hlutafé félagsins lækkar því úr 1.730.000.000 kr. í 1.660.000.000 kr. að nafnvirði sem skiptist í jafnmarga hluti og fylgir hverjum hlut eitt atkvæði.