A/F HEIM slhf.: Uppgjör fyrstu 6 mánuði ársins 2025
Tilkynning um afkomu A/F HEIM slhf.
Stjórn A/F HEIM slhf., sem er sérhæfður sjóður í rekstri Arctica sjóða hf., hefur í dag samþykkt árshlutareikning sjóðsins m.v. 30. júní 2025. Vaxtatekjur námu 585 milljónum króna (2024: 748 millj. kr.) og vaxtagjöld 585 milljónum króna (2024: 748 millj. kr.). Hreinar rekstrartekjur félagsins námu 9 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins 2025 (2024: 9 millj. kr.). Hagnaður félagsins á tímabilinu nam 1 þúsund krónum (2024: 13 þús.kr).
Eignir félagsins námu 15,7 ma. kr. þann 30. júní 2025 og skuldir félagsins námu á sama tíma 15,7 ma. kr. Eigið fé félagsins í lok júní 2025 var 5,1 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Vísað er að öðru leyti til árshlutareiknings félagsins um breytingar á eigin fé félagsins og ráðstöfun hagnaðar.
Sjóðurinn A/F HEIM slhf. hóf rekstur í júlí árið 2021 og starfar samkvæmt lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Sjóðurinn fjárfesti þá í skráðum skuldabréfum sem voru útgefin af Heimavöllum hf. gegn greiðslu með skráðum skuldabréfum útgefnum af sjóðnum, sem eru með veði í fasteignatryggðum seljendalánum til Íveru ehf. (áður Heimstaden ehf.). Skráðir skuldabréfaflokkar A/F HEIM slhf. eru þrír talsins, HEIM070826, HEIM100646 og HEIM071248.
Meðfylgjandi er árshlutareikningur m.v. 30. júní 2025.