Pressmeddelande

Arion banki hf.: Áframhald endurkaupaáætlunar

Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 10. mars 2026 um hlé á endurkaupaáætlun bankans. Á aðalfundi bankans 11. mars 2026 var samþykkt tillaga um endurnýjun á heimild bankans til kaupa á eigin hlutum og heimildarskírteinum (SDR) og hefur Arion banki ákveðið að hefja endurkaup að nýju á grundvelli gildandi endurkaupaáætlunar, sbr. tilkynning þann 14. janúar 2026 um framkvæmd endurkaupaáætlunar. Framkvæmd endurkaupa hefst að nýju frá og með 12. mars 2026.

Bifogade filer