Arion banki hf.: Niðurstaða skiptiútboðs sértryggðra skuldabréfa
Niðurstaða skiptiútboðs leiðir til þess að Arion banki kaupir 580 m.kr. að nafnvirði í flokknum ARION CBI 26.
Í tengslum við útboð Arion banka í gær á sértryggða skuldabréfaflokknum ARION CBI 31 bauðst eigendum flokksins ARION CBI 26 að selja bréf sín á fyrirframákveðna hreina verðinu 100 gegn kaupum í útboðinu.
Niðurstaða skiptiútboðs leiðir til þess að Arion banki kaupir 580 m.kr. að nafnvirði í flokknum ARION CBI 26.
Uppgjör endurkaupanna fer fram þann 15. apríl 2026.
Markaðsviðskipti Arion banka höfðu umsjón með útboðinu.

