Arion banki hf.: Útboð sértryggðra skuldabréfa þann 1. október 2025
Arion banki verður með útboð á sértryggða skuldabréfaflokknum, ARION CBI 31, miðvikudaginn 1. október 2025.
ARION CBI 31 er verðtryggður skuldabréfaflokkur með föstum 3,65% vöxtum og lokagjalddaga 20. ágúst 2031.
Fyrirkomulag útboðs verður með þeim hætti að öll samþykkt tilboð verða tekin á hæstu samþykktu ávöxtunarkröfunni. Arion banki áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka tilboðum að hluta.
Í tengslum við útboðið fer fram skiptiútboð þar sem eigendur flokksins ARION CBI 26 eiga þess kost að selja bréf í flokknum gegn kaupum í ofangreindu útboði. Hreint verð í skiptiútboðinu er 97,1122.
Áætlaður uppgjörsdagur er 8. október 2025. Tekið er við greiðslu reiðufjár auk skipta á ARION CBI 26.
Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á netfangið [email protected] fyrir kl. 16:00, miðvikudaginn 1. október 2025.