Arion banki hf
Börskollen - Aktier, fonder och ekonominyheter

Börskollen

För dig med koll på börsen

Pressmeddelande

Arion banki hf.: Útboð sértryggðra skuldabréfa þann 24. júní 2025

Arion banki verður með útboð á nýjum sértryggðum skuldabréfaflokki, ARION CBI 31, þriðjudaginn 24. júní 2025.

ARION CBI 31 er verðtryggður skuldabréfaflokkur með föstum 3,65% vöxtum og lokagjalddaga 20. ágúst 2031.

Fyrirkomulag útboðs verður með þeim hætti að öll samþykkt tilboð verða tekin á hæstu samþykktu ávöxtunarkröfunni. Arion banki áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka tilboðum að hluta.

Áætlaður uppgjörsdagur er 30. júní 2025. Greiðsla fer fram með reiðufé.

Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á netfangið  [email protected] fyrir kl. 15:00, fimmtudaginn 24. júní 2025.

Bifogade filer

Nyheter om Arion Banki

Läses av andra just nu

Om aktien Arion Banki

Senaste nytt