Arion banki: Vegna dóms Hæstaréttar í máli gegn Íslandsbanka
Börskollen - Aktier, fonder och ekonominyheter
BörskollenFör dig med koll på börsen

Pressmeddelande

Arion banki: Vegna dóms Hæstaréttar í máli gegn Íslandsbanka

Í gær kvað Hæstiréttur upp dóm í máli sem höfðað var gegn Íslandsbanka og sneri að skilmálum tiltekins íbúðaláns sem innihélt ákvæði um breytilega óverðtryggða vexti. Dómurinn telur að skilmálar lánsins, sem kveða á um heimildir Íslandsbanka til breytinga á vöxtum, séu að hluta til ólögmætir.

Rétt er að halda því til haga að skilmálar íbúðalána Arion banka með ákvæðum um breytilega vexti eru frábrugðnir þeim sem fjallað er um í dómi Hæstaréttar í málinu gegn Íslandsbanka og er því erfitt að meta nákvæm áhrif af dómnum á lán Arion banka með óverðtryggðum vöxtum. Að því gefnu að sambærileg niðurstaða fengist í ágreiningsmáli um lán Arion banka með óverðtryggðum vöxtum er það bráðabirgðamat bankans að fjárhagsleg áhrif slíkrar niðurstöðu yrðu óveruleg.

Mál gegn Arion banka, þar sem tekist er á um lögmæti skilmála um heimild bankans til að breyta vöxtum á verðtryggðu íbúðaláni, bíður nú málflutnings fyrir Hæstarétti. Landsréttur dæmdi í þessu máli bankanum í vil í febrúar síðastliðnum. Þar sem vaxtabreytingarskilmálar lána með verðtryggðum vöxtum vísa eðli málsins samkvæmt ekki til vaxta sem Seðlabankinn ákveður er óvissa um niðurstöðu þess máls hjá Hæstarétti meiri en þegar kemur að lánum með óverðtryggða vexti.

Bankinn mun áfram meta niðurstöðu Hæstaréttar frá því í gær og forsendur hennar.

Bifogade filer

Nyheter om Arion Banki

Läses av andra just nu

Om aktien Arion Banki

Senaste nytt