Arion banki hf.: Moody´s staðfestir lánshæfismat Arion banka, horfur eru áfram stöðugar, í kjölfar tilkynningar um að ekki verði af samruna Arion banka og Kviku

Moody´s Ratings hefur staðfest A2/P-1 langtíma- og skammtíma innlán og A3 lánshæfismat Arion banka fyrir langtíma útgáfur og almenn ótryggð skuldabréf með stöðugum horfum fyrir langtímaeinkunnir.

Staðfesting lánshæfismats kemur í kjölfar tilkynningar Arion banka frá 15. apríl 2026 um að stjórnir bankanna hefðu fallið frá áformum um sameiningu.

Sjá frekari upplýsingar í viðhengi