Arion banki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Arion banki lauk í dag útboði á sértryggða skuldabréfaflokknum ARION CBI 31 fyrir samtals 1.560 m.kr.

Í flokkinn ARION CBI 31 bárust 9 tilboð að fjárhæð 1.860 m.kr. að nafnvirði á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,13 – 3,20%. Tilboð að nafnvirði 1.560 m.kr. voru samþykkt á kröfunni 3,17%. Heildarstærð flokksins verður 14.300 m.kr. eftir útgáfuna (þar af 960 m.kr. gefið út til eigin nota).

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 11. febrúar 2026.

Skuldabréfin eru gefin út undir útgáfuramma sértryggðra skuldabréfa. Grunnlýsing útgáfurammans má nálgast hér.

Umsjónaraðili útboðsins er Markaðsviðskipti Arion banka.

Bifogade filer

Bifogade filer till pressmeddelandet