Arion banki hf: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Börskollen - Aktier, fonder och ekonominyheter

Börskollen

För dig med koll på börsen

Pressmeddelande

Arion banki hf: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 11. apríl 2025 um framkvæmd endurkaupaáætlunar. Í 21. viku 2025 keypti Arion banki eigin hluti á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. og sænsk heimildarskírteini (SDR) á Nasdaq í Stokkhólmi. Sjá frekari upplýsingar hér að neðan.

Endurkaup á hlutum á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í umrædd skipti voru eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverðHlutir í eigu Arion
19.5.202515:23:59500.000170,5085.250.00027.605.083
20.5.202510:01:56250.000169,7542.437.50027.855.083
20.5.202511:05:22250.000169,5042.375.00028.105.083
20.5.202511:18:06250.000169,0042.250.00028.355.083
21.5.202509:39:11250.000168,5042.125.00028.605.083
21.5.202513:49:20500.000170,7585.375.00029.105.083
22.5.202510:37:52250.000173,0043.250.00029.355.083


2.250.000
383.062.50029.355.083

Endurkaup á heimildarskírteinum á Nasdaq í Stokkhólmi voru eftirfarandi:

DagsetningTímiKeypt SDRViðskiptaverðKaupverð (SEK)SDR í eigu Arion
19.5.202509:53:5849612,96.3983.485.049
19.5.202510:17:3840012,95.1603.485.449
19.5.202510:39:531012,91293.485.459
19.5.202511:28:484.09412,952.8133.489.553
21.5.202510:25:452.59712,7533.1123.492.150
21.5.202510:36:134312,755483.492.193
21.5.202512:55:4012412,751.5813.492.317
22.5.202514:41:315.00013,0565.2503.497.317
23.5.202512:19:313.00012,938.7003.500.317
23.5.202512:22:552.00012,925.8003.502.317


17.764
229.4913.502.317

Arion banki átti fyrir viðskiptin í viku 21 samtals 30.589.636 eigin hluti og heimildarskírteini og á bankinn í lok viku 21 samtals 32.857.400 eigin hluti og heimildarskírteini. Samtals á bankinn nú sem nemur 2,31% af útgefnum hlutum í félaginu. Frá því að endurkaupaáætlun hófst hefur bankinn keypt samtals 13.983.176 hluti fyrir 2.211.293.741 kr. og 58.308 heimildarskírteini fyrir 706.972 sænskar krónur.

Heimilt er að kaupa allt að 397.350 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,03% af útgefnum hlutum og allt að 19.470.150 hluti á Íslandi, eða sem svara til 1,37% af útgefnum hlutum bankans (samtals um 1,4% af útgefnum hlutum). Fjárhæð endurkaupanna skal ekki nema hærri fjárhæð en sem svarar til 60.000.000 kr. í Svíþjóð og 2.940.000.000 kr. á Íslandi (samtals 3,0 milljarðar króna). Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar framangreindu er náð eða í síðasta lagi 31.desember 2025. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á tímabilinu.
 
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, eins og við á, þar með talin Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglna nr. 1275/2024 um sama efni. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina eru birt opinberlega í samræmi við gildandi lög og reglur í Svíþjóð og á Íslandi, eins og við á.

Bifogade filer

Nyheter om Arion Banki

Läses av andra just nu

Om aktien Arion Banki

Senaste nytt