Arion banki hf
Börskollen - Aktier, fonder och ekonominyheter

Börskollen

För dig med koll på börsen

Pressmeddelande

Arion banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 11. apríl 2025 um framkvæmd endurkaupaáætlunar. Í 22. viku 2025 keypti Arion banki eigin hluti á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. og sænsk heimildarskírteini (SDR) á Nasdaq í Stokkhólmi. Sjá frekari upplýsingar hér að neðan.

Endurkaup á hlutum á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í umrædd skipti voru eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverðHlutir í eigu Arion
26.5.202513:39:28800.000172,75138.200.00030.155.083
27.5.202513:53:27850.000173,00147.050.00031.005.083
28.5.202509:31:41500.000178,5089.250.00031.193.361
28.5.202510:15:26250.000177,2544.312.50031.443.361
30.5.202513:43:05900.000176,00158.400.00032.343.361


3.300.000
577.212.50032.343.361

Endurkaup á heimildarskírteinum á Nasdaq í Stokkhólmi voru eftirfarandi:

DagsetningTímiKeypt SDRViðskiptaverðKaupverð (SEK)SDR í eigu Arion
30.5.202514:03:53313,15393.502.320
30.5.202514:04:401.11213,1514.6233.503.432


1.115
14.6623.503.432

Arion banki átti fyrir viðskiptin í viku 22 samtals 32.857.400 eigin hluti og heimildarskírteini og á bankinn í lok viku 22 samtals 35.845.678 eigin hluti og heimildarskírteini. Samtals á bankinn nú sem nemur 2,52% af útgefnum hlutum í félaginu. Frá því að endurkaupaáætlun hófst hefur bankinn keypt samtals 17.283.176 hluti fyrir 2.788.506.241 kr. og 59.423 heimildarskírteini fyrir 721.635 sænskar krónur.

Heimilt er að kaupa allt að 397.350 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,03% af útgefnum hlutum og allt að 19.470.150 hluti á Íslandi, eða sem svara til 1,37% af útgefnum hlutum bankans (samtals um 1,4% af útgefnum hlutum). Fjárhæð endurkaupanna skal ekki nema hærri fjárhæð en sem svarar til 60.000.000 kr. í Svíþjóð og 2.940.000.000 kr. á Íslandi (samtals 3,0 milljarðar króna). Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar framangreindu er náð eða í síðasta lagi 31.desember 2025. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á tímabilinu.
 
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, eins og við á, þar með talin Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglna nr. 1275/2024 um sama efni. Viðskipti með eigin hluti í samræmi við endurkaupaáætlunina eru birt opinberlega í samræmi við gildandi lög og reglur í Svíþjóð og á Íslandi, eins og við á.

Bifogade filer

Nyheter om Arion Banki

Läses av andra just nu

Om aktien Arion Banki

Senaste nytt