Arion banki hf.: Útboð sértryggðra skuldabréfa þann 7. maí 2025
Arion banki verður með útboð á sértryggða skuldabréfaflokknum ARION CBI 28 miðvikudaginn 7. maí 2025
ARION CBI 28 er verðtryggður skuldabréfaflokkur með föstum 4,25% vöxtum og lokagjalddaga 20. september 2028.
Fyrirkomulag útboðs verður með þeim hætti að öll samþykkt tilboð verða tekin á hæstu samþykktu ávöxtunarkröfunni. Arion banki áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka tilboðum að hluta.
Áætlaður uppgjörsdagur er 14. maí 2025.
Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á netfangið [email protected] fyrir kl. 16:00 þann 7. maí 2025