Pressmeddelande

Arion banki: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

Vísað er til tilkynningar Arion banka sem birt var 22. maí 2026 um framkvæmd endurkaupaáætlunar. Í 26. viku 2026 keypti Arion banki eigin hluti á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. og sænsk heimildarskírteini (SDR) á Nasdaq í Stokkhólmi. Sjá frekari upplýsingar hér að neðan.

Endurkaup á hlutum á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í umrædd skipti voru eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverðHlutir í eigu Arion
22.6.202613:07:55200.000193,0038.600.000 18.771.260
22.6.202613:58:58200.000193,5038.700.000 18.971.260
22.6.202614:10:05150.000193,5029.025.000 19.121.260
23.6.202612:06:16150.000191,5028.725.000 19.271.260
23.6.202614:17:51250.000192,0048.000.000 19.521.260
23.6.202615:06:06150.000192,0028.800.000 19.671.260
24.6.202611:33:46250.000191,5047.875.000 19.921.260
24.6.202613:05:25150.000192,0028.800.000 20.071.260
24.6.202613:20:54190.000192,0036.480.000 20.261.260
25.6.202614:43:59300.000191,5057.450.000 20.561.260
25.6.202615:14:13250.000191,5047.875.000 20.811.260
26.6.202610:21:02200.000190,7538.150.000 21.011.260
26.6.202612:24:26200.000190,7538.150.000 21.211.260


2.640.000
506.630.000 21.211.260

Endurkaup á heimildarskírteinum á Nasdaq í Stokkhólmi voru eftirfarandi:

DagsetningTímiKeypt SDRViðskiptaverðKaupverð (SEK)SDR í eigu Arion
23.6.202615:17:426.20514,791.2143.728.281
25.6.202610:39:3211914,561.7333.728.400
25.6.202611:22:05114,56153.728.401
25.6.202612:01:06114,56153.728.402
25.6.202614:04:495214,567573.728.454
25.6.202614:04:49114,56153.728.455
25.6.202614:05:02114,56153.728.456


6.380
93.7623.728.456

Arion banki átti fyrir viðskiptin í viku 26 samtals 22.293.336 eigin hluti og heimildarskírteini og á bankinn í lok viku 26 samtals 24.939.716 eigin hluti og heimildarskírteini. Samtals á bankinn nú sem nemur 1,81% af útgefnum hlutum í félaginu. Frá því að endurkaupaáætlun hófst hefur bankinn keypt samtals 10.701.011 hluti fyrir 2.074.059.563 kr. og 43.176 heimildarskírteini fyrir 632.684 sænskar krónur.

Heimilt er að kaupa allt að 532.000 SDR í Svíþjóð, sem samsvarar 0,04% af útgefnum hlutum og allt að 26.068.000 hluti á Íslandi, eða sem svara til 1,89% af útgefnum hlutum bankans (samtals um 1,93% af útgefnum hlutum). Fjárhæð endurkaupanna skal ekki nema hærri fjárhæð en sem svarar til 100.000.000 kr. í Svíþjóð og 4.900.000.000 kr. á Íslandi (samtals 5,0 milljarðar króna). Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar framangreindu er náð eða í síðasta lagi 31. desember 2026. Arion banki hf. hefur heimild til að stöðva framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar hvenær sem er á tímabilinu.
 
Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög og reglur á Íslandi og í Svíþjóð, eins og við á, þar með talin Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik („MAR“) og ákvæði framseldar reglugerðar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins nr. 2016/1052, sem og íslensk lög um hlutafélög nr. 2/1995, lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum auk reglna nr. 1290/2025 um sama efni.

Bifogade filer